Sunday, 7 December 2008

Jamm... núna kemur að því

Við erum öll flutt til Íslands. Lands hins fjárvana fjárfestis, hins skuldsetta almúga og síðast en ekki síst hins vanhæfa stjórnmálamanns.

Það voru nánast tár og læti þegar ég kvaddi vinina mína hjá SHL og síðan var meira um næstum tár og læti þegar Gerða tók á móti mér úti á flugvelli á föstudagskvöldið.

Hitti reyndar gamlan kunningja í flugvélinni á leiðinni heim. Svo gamlan að Guðmundur Ingi Björnsson var að kenna mér dönsku þegar ég hitti hann síðast. Sá er orðinn verkfræðingur og var einmitt í London að leita sér að vinnu. Flugferðin fór svo í að rakka niður fjárvana útrásarkalla og fremur lítið hæfa stjórnmálamenn.

Fórum svo út í dag að leika okkur í snjókomunni og rokinu. Fórum í Húsdýragarðinn og það var ægilega skemmtilegt.


Á morgun bíður svo nýja vinnan.

Hlakka til og kvíði fyrir.

Gaman að takast á við ný verkefni og erfitt að fara úr aðstæðum þar sem maður kunni allt.

Kveðja
Siggi

Thursday, 24 April 2008

Ertu að rugla í mér

Shit, var að hugsa hvort að það væri ekki kominn tími á smá blog. Taldi nú ekki vera langt síðan að það var bloggað síðast.... Fór svo inn á þetta fína blog mitt og sé að síðasta færsla var í Nóvember...Og æskufélaginn góði hann Óskar commentaði í Janúar þar sem hann gafst upp á að bíða eftir næstu færslu... og það versta er að ég var að sjá það núna, Í APRÍL.

Allavega:
a. jólin komu og fóru.. voru fín
b. Ráðstefnan í Dallas kom og fór.. var fín
c. Er búinn að fresta PhD um ár.. bara fínt
d. Adda fer eftir nokkra daga.. Ekkert voða fínt
e. Adda er búinn að vera hjá okkur í allan vetur.. það er sko fínt
f. Það mun kosta okkur aleiguna að koma til ísl í sumar.. bara slæmt
g. Við höfum samt gistingu í Rvk.. það er betra en ekki, voða kalt í tjaldi á ísl
h. Vinn samt á fullu í PhD.. bara fínt
i. Mun vera með námskeið á stórri ráðstefnu í sumar.. hlakka til
j. Í Liverpool hehehe
k. og svo framvegis.

Allavega, ég lofa þeim tveim sem gætu mögulega lesið á þetta að þetta verður ekki eina færslan á þessu ári... sjáumst í Nóv :-)