Thursday, 24 April 2008

Ertu að rugla í mér

Shit, var að hugsa hvort að það væri ekki kominn tími á smá blog. Taldi nú ekki vera langt síðan að það var bloggað síðast.... Fór svo inn á þetta fína blog mitt og sé að síðasta færsla var í Nóvember...Og æskufélaginn góði hann Óskar commentaði í Janúar þar sem hann gafst upp á að bíða eftir næstu færslu... og það versta er að ég var að sjá það núna, Í APRÍL.

Allavega:
a. jólin komu og fóru.. voru fín
b. Ráðstefnan í Dallas kom og fór.. var fín
c. Er búinn að fresta PhD um ár.. bara fínt
d. Adda fer eftir nokkra daga.. Ekkert voða fínt
e. Adda er búinn að vera hjá okkur í allan vetur.. það er sko fínt
f. Það mun kosta okkur aleiguna að koma til ísl í sumar.. bara slæmt
g. Við höfum samt gistingu í Rvk.. það er betra en ekki, voða kalt í tjaldi á ísl
h. Vinn samt á fullu í PhD.. bara fínt
i. Mun vera með námskeið á stórri ráðstefnu í sumar.. hlakka til
j. Í Liverpool hehehe
k. og svo framvegis.

Allavega, ég lofa þeim tveim sem gætu mögulega lesið á þetta að þetta verður ekki eina færslan á þessu ári... sjáumst í Nóv :-)

4 comments:

Sara said...

hæhæ gaman að lesa nýja færslu...
en ég held að þú hafir gleymt að minnast á í upptalningunni þinni að við komum 10 júní :):)
hlakka til að lesa meira blogg sem vonandi kemur fljótlega...
LoVe
Sara

Sara said...

sem sagt þetta er Sara en ég get ekki signað mig inn þannig að ég er með nafnið steinunn núna hehe

Sara said...

sjáðu bara núna er ég búin að breyta steinunnar í mitt hahaha.... sem sagt þetta er hennar profile en ég skírði hann bara Sara.... en sniðugt
later bro
SaRa

Oskarara said...

Mikið var, var nú löngu búinn að gefa upp alla von um að þessari síðu yrði framhaldið. Nú bíður maður bara spenntur þangað til í nóvember.