Það voru nánast tár og læti þegar ég kvaddi vinina mína hjá SHL og síðan var meira um næstum tár og læti þegar Gerða tók á móti mér úti á flugvelli á föstudagskvöldið.
Hitti reyndar gamlan kunningja í flugvélinni á leiðinni heim. Svo gamlan að Guðmundur Ingi Björnsson var að kenna mér dönsku þegar ég hitti hann síðast. Sá er orðinn verkfræðingur og var einmitt í London að leita sér að vinnu. Flugferðin fór svo í að rakka niður fjárvana útrásarkalla og fremur lítið hæfa stjórnmálamenn.
Fórum svo út í dag að leika okkur í snjókomunni og rokinu. Fórum í Húsdýragarðinn og það var ægilega skemmtilegt.


Á morgun bíður svo nýja vinnan.
Hlakka til og kvíði fyrir.
Gaman að takast á við ný verkefni og erfitt að fara úr aðstæðum þar sem maður kunni allt.
Kveðja
Siggi