Sunday, 7 December 2008

Jamm... núna kemur að því

Við erum öll flutt til Íslands. Lands hins fjárvana fjárfestis, hins skuldsetta almúga og síðast en ekki síst hins vanhæfa stjórnmálamanns.

Það voru nánast tár og læti þegar ég kvaddi vinina mína hjá SHL og síðan var meira um næstum tár og læti þegar Gerða tók á móti mér úti á flugvelli á föstudagskvöldið.

Hitti reyndar gamlan kunningja í flugvélinni á leiðinni heim. Svo gamlan að Guðmundur Ingi Björnsson var að kenna mér dönsku þegar ég hitti hann síðast. Sá er orðinn verkfræðingur og var einmitt í London að leita sér að vinnu. Flugferðin fór svo í að rakka niður fjárvana útrásarkalla og fremur lítið hæfa stjórnmálamenn.

Fórum svo út í dag að leika okkur í snjókomunni og rokinu. Fórum í Húsdýragarðinn og það var ægilega skemmtilegt.


Á morgun bíður svo nýja vinnan.

Hlakka til og kvíði fyrir.

Gaman að takast á við ný verkefni og erfitt að fara úr aðstæðum þar sem maður kunni allt.

Kveðja
Siggi

No comments: